Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 251/2023

Nr. 251/2023 27. febrúar 2023

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.

Nýtt deiliskipulag fyrir Snókalönd, gamla hraunnámu við Bláfjallaveg.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 1. febrúar 2023 nýtt deiliskipulag fyrir Snókalönd við Bláfjallaveg.
Markmiðið með deiliskipulaginu er að afmarka lóð fyrir norðurljósastarfsemi, myrkvunarsvæði, byggingarreit og bílastæði ásamt aðkomu þeirra sem koma í norðurljósa- eða stjörnuskoðun.
Málsmeðferð var skv. 41. og 42. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

 

Hafnarfirði, 27. febrúar 2023.

 

Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt.


B deild - Útgáfud.: 13. mars 2023