Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2020

Nr. 10/2020 27. febrúar 2020

LÖG
um breytingu á lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015 (stjórnvaldssektir).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Á eftir 4. mgr. 6. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

    Óheimilt er að breyta kílómetrastöðu akstursmælis skráningarskylds ökutækis.

 

2. gr.

    Í stað „7. mgr.“ í 9. tölul. 1. mgr. 12. gr. laganna kemur: 8. mgr.

 

3. gr.

    Í stað orðanna „laga þessara og starfrækir ökutækjaleigu eða einkaleigu án leyfis“ í 1. mgr. 13. gr. laganna kemur: eða 5. mgr. 6. gr.

 

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 27. febrúar 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.


A deild - Útgáfud.: 3. mars 2020