Breyting á deiliskipulagi, miðbær–Hraun, vestur, lóð nr. 11 við Austurgötu. Í samræmi við skipulagslög samþykkti skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðarkaupstaðar, á fundi sínum þann 18. júní 2019, breytingu á deiliskipulaginu miðbær–Hraun, vestur, vegna lóðarinnar að Austurgötu 11. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að markaður er nýr byggingarreitur á lóðinni austanverðri. Heimilt er að byggja 2ja hæða byggingu fyrir bílgeymslu o.fl. sem tengist núverandi íbúðarhúsi með tengigangi á efri hæð. Nýtingarhlutfall lóðarinnar verður eftir breytingu 0,55, var áður 0,43. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 24. ágúst til 5. október 2018. Engar athugasemdir bárust. Málsmeðferð deiliskipulagsbreytingarinnar var samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar, 3. október 2019,
Guðrún Guðmundsdóttir.
|