Naustavör 13-15, 52-58 og 60-68. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 28. maí 2019 breytingu á deiliskipulagi fyrir Naustavör 13-15, 52-58 og 60-68. Í breytingunni felst að lóðirnar Naustavör 13 og 15 eru sameinaðar og þar ráðgerður byggingarreitur fyrir fjögurra deilda leikskóla á 4.600 m² lóð, en byggingarreitur fyrir fjölbýlishúsið að Naustavör 13 er felldur niður. Aðkoma, bílastæði og byggingarreitur breytist. Leikskólinn mun þjóna Bryggjuhverfi sem og vesturhluta Kársness. Í breytingunni felst jafnframt að aðkoma að Naustavör 52-58 breytist á þann hátt að vesturhluti Naustavarar liggur nú beint norður af gatnamótum Vesturvarar og Naustavarar. Bílastæði færast til vesturs og lóðarmörk breytast. Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir tveimur 4 hæða fjölbýlishúsum auk kjallara á lóðinni Naustavör 60-66 (áður 76-84) með alls 33 íbúðum. Í breytingunni felst að koma fyrir á lóðinni byggingarreit á 3 og 4 hæðum með kjallara. Gert er ráð fyrir 54 íbúðum. Lóðarmörk og aðkoma að Naustavör 60-66 breytist á þann hátt að vesturhluti Naustavarar liggur nú beint norður af gatnamótum Vesturvarar og Naustavarar. Bílastæðum á lóð og í kjallara fjölgar. Bílastæðakrafa helst óbreytt. Fallið er frá kennileiti á byggingarreit. Heildarbyggingarmagn eykst um 4.230 m² og verður 7.020 m² eftir breytingu. Göngu- og hjólaleið norðan Vesturvarar nr. 12-20 breytist sem og kvöð um skógrækt. Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi.
Gulaþing 3. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 28. maí 2019 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Gulaþing 3. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður um 2 m til suðurs og norðausturs, horn bílgeymslu fer sem nemur 2 x 1,6 m út úr byggingarreit. Málsmeðferð var skv. 43. gr. ofangreindra laga. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi.
Kópavogi, 3. júní 2019.
Birgir Hlynur Sigurðsson skipulagsstjóri.
|