Umhverfissvið Kópavogsbæjar hefur, í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og staðfestingu bæjarstjórnar Kópavogs, ákveðið eftirfarandi breytingar á umferðarrétti í sveitarfélaginu:
Biðskylda A06.11.
Að biðskylda verði á umferð:
frá Kópavogsgerði á gatnamótum við Kópavogstún í stað hægri réttar, um Hafnarbraut við gatnamót Nesvarar í stað biðskyldu á Nesvör, frá Tónahvarfi við gatnamót Turnahvarfs í stað hægri réttar.
Bannað að leggja ökutæki B21.11.
Að bannað verði að leggja ökutæki:
í Nesvör utan merktra bílastæða við götuna, í Norðurvör utan merktra bílastæða við götuna, við Engihjalla 1, framan við djúpgáma á tímabilinu kl. 8.00 – 17.00.
Stöðvunarskylda við vegamót B19.11.
Að stöðvunarskylda verði á umferð:
frá Urðarbraut út á Kársnesbraut í stað biðskyldu.
Kópavogsbæ, 1. mars 2023.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar.
|