Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 428/2019

Nr. 428/2019 24. apríl 2019

AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Lambhagavegur 7.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkur­borgar, þann 17. apríl 2019, breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar-Halla, atvinnu­svæði, vegna lóðarinnar nr. 7 við Lambhagaveg. Í breytingunni felst m.a. stækkun á byggingar­reit 1. hæðar/ jarðhæðar um 10 metra til austurs allt að lóðarmörkum og stækkun um 10 metra á norður- og suðurhlið og hækkun nýtingarhlutfalls lóðar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Austurhöfn.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkur­borgar, þann 18. mars 2019, breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar. Í breytingunni felst m.a. að skipulagsreitur er minnkaður um 451 m² og skipulagsmörk í Pósthússtræti færð nær lóðinni Austur­bakka 2 sem liggja 3 metra frá lóðarmörkum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Úlfarsárdalur.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án stað­festingar borgarráðs, þann 17. apríl 2019, breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðanna nr. 10, 11 og 12 við Gefjunarbrunn og 10 og 12 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni felst lítilsháttar stækkun á byggingarreitum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulags­laga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 24. apríl 2019.

Björn Axelsson.


B deild - Útgáfud.: 9. maí 2019