Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1319/2018

Nr. 1319/2018 20. desember 2018

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Hrunamannahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftir­farandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulag, Varmalækur, landnr. 166907.
Deiliskipulagið nær til um 2,2 ha svæðis austast á jörðinni Varmalæk, landnr. 166907 en þar er gert ráð fyrir þremur íbúðarhúsalóðum þar sem heimilt er að byggja allt að 350 m² íbúðar­hús og 60 m² gestahús/geymslu. Einnig er gert ráð fyrir lóð undir hesthús allt að 250 m².
Samþykkt í sveitarstjórn 31. maí 2018.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 20. desember 2018.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 9. janúar 2019