Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
|
Deiliskipulagsbreyting, Rimar, íbúðarbyggð, Súluholt. Breytingin felur í sér óverulega breytingu á gildandi skilmálum deiliskipulags íbúðarbyggðar Rima í landi Súluholts. Gerð er breyting á kafla 2, 3 og 4 í greinargerð deiliskipulags sem felst m.a. í breytingu á gerð og stærð húsa, sbr. eftirfarandi: |
|
|
2.1 |
Íbúðarbyggð. Á skipulagssvæðinu eru skilgreindar alls 29 íbúðarlóðir í landi Súluholts, sem eru á bilinu 1-1½ ha að stærð. Skipulagið tekur einnig til nýbýlis á 10 ha landsvæði sunnan frístundabyggðarinnar. Í íbúðarbyggðinni er leyfilegt að vera með minni háttar dýrahald. |
|
|
2.2 |
Staðsetning húsa. Heimilt er að byggja 3 hús á hverri lóð; íbúðarhús/bílskúr, skemmu og útihús, t.d. hesthús. Byggingarreitur er sýndur á uppdrætti og skulu hús staðsett innan byggingarreits og í samráði við byggingarfulltrúa. |
|
|
2.3 |
Húsagerðir og húsastærðir. Húsagerð og efnisval húsa er frjálst, sjá nánar kafla 3.1. |
|
|
2.8 |
Sorp. Sorphirða fer eftir reglum sveitarfélagsins hverju sinni. |
|
|
3.3 |
Sorpgeymslur. Sorpgeymslur skulu vera í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012. |
|
|
4.1 |
Almennt. Á hverri lóð er heimilt að byggja 3 hús; íbúðarhús og 2 aukahús. Heildarbyggingarmagn á lóð er að hámarki 800 m². |
|
|
4.2 |
Húsastærðir. Hvert hús getur verið allt að 300 m² að stærð. Mesta hæð á mæni er 6,0 m miðað við hæð jarðvegs umhverfis húsið. |
|
|
Kaflar 4.3 (Hesthús) og 4.4 (Skemmur) falla út. Að öðru leyti gilda skilmálar í gildandi deiliskipulagi. |
|
Samþykkt í sveitarstjórn 17. maí 2019. |
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 5. júní 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|