Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 364/2021

Nr. 364/2021 19. mars 2021

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi – orlofsbyggð norðan Kjarnalundar.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 10. mars 2021 deiliskipulagsbreytingu fyrir Götu norður­ljósanna nr. 9.
Breytingin felur í sér aukið byggingarmagn þar sem heimilt er að byggja allt að 150 m² hús, byggingarreitur er stækkaður um 1,5 m til suðurs og mörk sérafnotahluta lóðar stækka um 1 m til vesturs.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 19. mars 2021,

 

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 6. apríl 2021