Hverfisskipulag fyrir Ártúnsholt, Árbæ og Selás ásamt leiðbeiningum hverfisskipulags. Í samræmi við 5. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkti skipulags- og samgönguráð þann 25. september 2019 og borgarráð Reykjavíkur þann 10. október 2019 tillögu að hverfisskipulagi í Ártúnsholti, Árbæ og Selási. Hverfisskipulag er ný skipulagsáætlun fyrir gróin hverfi og kemur í stað eldri deiliskipulagsáætlana sem verða felldar úr gildi við samþykkt hverfisskipulags, sbr. heimildarskrá yfir deiliskipulag sem fellt er úr gildi, aftast í bók 2 í hverfisskipulaginu fyrir Ártúnsholt, Árbæ og Selsás. Helstu markmið hverfisskipulagsins eru að stuðla að sjálfbærum og vistvænum hverfum, fjölga íbúðum og auðvelda íbúum að sækja um breytingar á fasteignum sínum. Uppdrættir og greinargerð (skilmálar) hafa hlotið meðferð samkvæmt 5. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hverfisskipulagið öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 31. október 2019.
Björn Axelsson.
|