Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1057/2022

Nr. 1057/2022 12. september 2022

GJALDSKRÁ
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir akstursþjónustu aldraðra.

1. gr.

Upphæð gjalds.

Gjald fyrir hverja ferð hjá akstursþjónustu aldraðra er kr. 1.380 óháð fjölda ferða.

 

2. gr.

Gjaldskylda ónýttrar þjónustu.

Greiða skal fyrir pantaðar ferðir þegar forföll hafa ekki verið tilkynnt.

Afpanta skal ferð með sem mestum fyrirvara, að lágmarki með þriggja klst. fyrirvara fyrir fyrir­hugaða ferð. Að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri bæði gagnvart sveitarfélagi og notanda. Mæti notandi ekki á upphafsstað ferðar á tilsettum tíma telst ferðin einnig með í uppgjöri gagnvart sveitar­félagi og notanda.

 

3. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í X. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og reglum Reykjavíkurborgar um akstursþjónustu aldraðra.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi við birtingu og fellur þá jafnframt úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1559/2021.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. september 2022.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 16. september 2022