Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1130/2020

Nr. 1130/2020 20. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1106/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

5. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 2 metra nálægðartakmörkun hver gagn­vart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.e. að hámarki 50 börn á leikskólaaldri og í 1.–4. bekk og að hámarki 25 í 5.–10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í leik- og grunn­skóla­starfi. Um nemendur í 8.–10. bekk gildir 2 metra nálægðartakmörkun en ef víkja þarf frá henni skulu andlitsgrímur notaðar, ef unnt er.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlits­grímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi og gildir til og með 1. desember 2020.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 20. nóvember 2020.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. nóvember 2020