Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 710/2019

Nr. 710/2019 1. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 605/2019, um veiðar á makríl.

1. gr.

Á eftir 2. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 2 a., svohljóðandi:
Aflahlutdeild og aflamark í makríl skiptist í A- og B-flokk. Skip sem eru með aflamark í makríl skiptast í A- og B-flokk og fer um skiptinguna eftir því í hvaða flokki aflaheimildir skipsins eru. Ekki er hægt að skipta um flokk á veiðitímabilinu. Óheimilt er að flytja aflahlutdeild og aflamark úr ­­­­B-flokki yfir í A-flokk.

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, III, svohljóðandi:
Hafi skip veiðireynslu í bæði A- og B- flokki, sbr. 2. mgr. bráðabirgðaákvæði II, skal úthluta aflahlutdeild í þeim flokki er skipið veiddi í á síðasta veiðitímabili sem skipið var á makrílveiðum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar  gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. ágúst 2019.

F.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Erna Jónsdóttir.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 1. ágúst 2019