Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 856/2021

Nr. 856/2021 1. júlí 2021

AUGLÝSING
um umferð í Seltjarnarnesbæ.

Skipulags- og umferðarnefnd og bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hafa, í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar:

Að á bílastæði við Leikskóla Seltjarnarness, Mánabrekku og Sólbrekku, á horni Suðurstrandar og Nesvegar, verði bönnuð staða eftirvagna, báta, húsbíla og annarra svipaðra tækja, sbr. 29. og 84. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019 og 20. gr. lögreglusamþykktar Seltjarnarnesbæjar, nr. 555/2010.
Ofangreint sé merkt með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum þar sem það á við, í samræmi við reglugerð nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra, með síðari breytingum.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

 

Seltjarnarnesi, 1. júlí 2021.

 

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2021