Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 111/2020

Nr. 111/2020 7. febrúar 2020

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/237 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 28.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 328/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ingsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/237 frá 8. febrúar 2019 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í sam­ræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóð­legan reikn­ingsskilastaðal, IAS-staðal 28.

 

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2019/237 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 614.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðu­reikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. febrúar 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. febrúar 2020