Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 455/2020

Nr. 455/2020 15. maí 2020

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 407/2020, um bann við hrognkelsaveiðum árið 2020.

1. gr.

Ný málsgrein bætist við 2. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi:

Bátur sem fær leyfi til grásleppuveiða á innra svæði Breiðafjarðar, skv. 1. mgr. getur landað að hámarki 15 tonnum af grásleppu á grásleppuvertíð 2020.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin tekur þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. maí 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 18. maí 2020