Í samræmi við bráðabirgðaákvæði I laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992, með síðari breytingum, og ákvæði 17. gr. reglna nr. 370/2010, um gjaldeyrismál, hefur Seðlabanki Íslands lokið endurskoðun á gildandi reglum nr. 370/2010, um gjaldeyrismál, og telur Seðlabankinn ekki þörf á að gera breytingar á þeim. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur veitt samþykki sitt fyrir óbreyttum reglum, með bréfi, dags. 27. apríl 2011. Reglur nr. 370/2010, um gjaldeyrismál, haldast því óbreyttar. Reglurnar skulu endurskoðaðar innan sex mánaða frá birtingu auglýsingar þessarar. Reykjavík, 28. apríl 2011. | Seðlabanki Íslands, | | Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri. | Þuríður Árnadóttir, staðg. forstm. gjaldeyriseftirlits. |
|