1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 9. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/588 frá 11. apríl 2019 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 605/2010 að því er varðar að færa Sameinaða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland og tilteknar hjálendur krúnunnar á skrá yfir þriðju lönd eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á sendingum af hrámjólk, mjólkurafurðum, broddi og afurðum, að stofni til úr broddi, sem ætluð eru til manneldis, til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. maí 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|