Háskóli Íslands, Vísindagarðar. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða. Í breytingunni felst að suðaustan við svæðið er byggingarreit útisvæðis bætt við. Útisvæðið verður afgirt með 4 metra háu grindverki og verður gert ráð fyrir færanlegum gámaeiningum á svæðinu ásamt því að kælitækjum verður fjölgað. Lóð G stækkar um 18 m² á horni Sæmundargötu og Eggertsgötu og skilmálatafla fyrir lóð G breytist. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Kjalarnes, Mógilsá. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. janúar 2020, breytingu á deiliskipulagi Mógilsár og Kollafjarðar. Í breytingunni felst að byggingarreit A er hliðrað til vesturs vegna legu fornleifa á svæðinu, reitur Þ1 er stækkaður til vesturs svo að reitur A falli allur innan svæðisins eftir færsluna, heimilt byggingarmagn á reit A er aukið og skilmálum um leyfilega þjónustu breytt. Auk þess verða B-rými sem eru ekki inni í heildartölu byggingarmagns og bætt er við ákvæði um að leyfa gististarfsemi á svæðinu. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Hlíðarendi/Flugvallarvegur. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 6. maí 2020, breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Í breytingunni felst afmörkun nýrrar lóðar fyrir dreifistöð rafmagns við Flugvallarveg. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 9. júní 2020.
Björn Axelsson.
|