Hinn 14. júní 2017 var framkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar afhent fullgildingarskjal Íslands vegna bókunar, sem samþykkt var 11. júní 2014 í Genf á 103. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, við samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 29 um nauðungarvinnu frá 28. júní 1930, sbr. Samninga Íslands við erlend ríki nr. 37 þar sem samþykktin er birt.
Bókunin öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 14. júní 2018 og er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 3. mars 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|