1. gr.
Fyrir þjónustu og útrýmingarefni Meindýravarna Reykjavíkurborgar skal umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Tímagjald skal innheimt fyrir eyðingu meindýra en þó skal ekkert gjald tekið fyrir eyðingu á músum og rottum. Tímagjald vegna þjónustuverkefna og gjald fyrir akstur skal vera sem hér segir:
Tímagjald |
4.148 kr./klst. |
Akstur |
1.752 kr./ferð. |
3. gr.
Fyrir útrýmingarefni skal greiða gjald m.v. innkaupaverð og notað magn efnis ásamt 40% umsýsluþóknun.
4. gr.
Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af borgarráði Reykjavíkur, með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá Meindýravarna Reykjavíkurborgar nr. 1553/2021.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. september 2022.
Dagur B. Eggertsson.
|