Frístundasvæði í landi Bjarnastaða, svæði fimm, Brekkubyggð 14. Deiliskipulagsbreyting. Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Bjarnastaða, á fundi sínum 23. febrúar 2023. Breytingin tekur til stækkunar byggingarreits einnar lóðar um 10 m til austurs og vesturs. Skipulagsáætlunin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 24. febrúar 2023.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Þóra Margét Júlíusdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
|