Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 724/2022

Nr. 724/2022 19. maí 2022

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og barnamálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhalds­skóla. Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga. Hinar staðfestu námsbrautar­lýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

 

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Félagsfræðabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (22-522-3-6)
Náttúrufræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (22-523-3-6)
Náttúrufræðibraut - Búfræðisvið, stúdent, hæfniþrep 3 (22-524-3-7)
Opin braut, stúdent, hæfniþrep 3 (22-525-3-6)
Íþróttafræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (22-526-3-6)

 

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

 

Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 19. maí 2022.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Páll Magnússon.


B deild - Útgáfud.: 16. júní 2022