Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Þverlág 16, L201193. Deiliskipulagsbreytingin tekur til lóðarinnar Þverlág 16, L201193. Í breytingunni felst færsla á byggingarreit nær aðkomuvegi. Samþykkt í sveitarstjórn 25. maí 2022.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 7. september 2022.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|