Skipulagsstofnun staðfesti 10. júní 2020 breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. apríl 2020. Breytingin felst í breyttum skipulagsákvæðum á landbúnaðarsvæðum, hverfisvernd er skilgreind á hluta miðsvæðis á Vopnafirði og gert er ráð fyrir aðstöðu til fuglaskoðunar á Skiphólma og við Nýpslón. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 10. júní 2020.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
|