Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 754/2020

Nr. 754/2020 8. júlí 2020

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, í tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

 

2. gr.

Heiti námsbrautar   Raðnúmer
Almennt meistaranám, iðnmeistaranám, hæfniþrep 4     (20-413-4-11)
Húsasmíði, húsasmiður, hæfniþrep 3 (20-383-3-8)
Íslenskubraut fyrir útlendinga, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2    (20-464-2-5)
Kvikmyndatækni, kvikmyndatækni, hæfniþrep 3 (20-453-3-9)
Listdansbraut, stúdent, hæfniþrep 3   (20-469-3-7)
Meistaranám byggingagreina, iðnmeistaranám, hæfniþrep 4      (20-433-4-11)
Meistaraskóli málmiðngreina, iðnmeistaranám, hæfniþrep 4    (20-415-4-11)
Meistaraskóli rafiðngreina, iðnmeistaranám, hæfniþrep 4   (20-414-4-11)
Nám til iðnmeistara, iðnmeistaranám, hæfniþrep 4    (20-389-4-11)
Tækniteiknun, tækniteiknari, hæfniþrep 3     (20-347-3-9)
Undirbúningsbraut - framhaldsskólapróf, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2   (20-468-2-3)
Viðbótarnám til stúdents, stúdent, hæfniþrep 3   (20-471-3-7)

 

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

 

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 8. júlí 2020.

 

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Páll Magnússon.


B deild - Útgáfud.: 29. júlí 2020