Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1320/2018

Nr. 1320/2018 20. desember 2018

SAMÞYKKT
um stjórn Árneshrepps.

I. KAFLI

Um skipan hreppsnefndar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan hreppsnefndar.

Hreppsnefnd Árneshrepps er skipuð 5 hreppsnefndarmönnum sem kjörnir eru lýðræðislegri kosn­ingu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Árneshreppur er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni hreppsnefnd í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Árneshreppur annast þau lögmæltu verkefni sem honum eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Árneshreppur vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Árneshreppi er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um hreppsnefnd.

4. gr.

Hlutverk hreppsnefndar.

Hreppsnefnd fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykkt þessari.

Hreppsnefnd hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.

Verkefni hreppsnefndar.

Meðal verkefna hreppsnefndar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa oddvita og varaoddvita hreppsnefndar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endur­skoð­unarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitar­stjórnar­laga.
  3. Að setja hreppsnefnd siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins og ráða starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitar­félagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhags­áætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuld­bindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.

6. gr.

Ný hreppsnefnd tekur til starfa.

Nýkjörin hreppsnefnd tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi hrepps­nefnd umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitar­stjórna. Nýkjörin hreppsnefnd hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni hrepps­nefndar­innar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni hreppsnefnd sem á að baki lengsta setu í hreppsnefnd boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í hreppsnefnd fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör oddvita og varaoddvita.

Á fyrsta fundi kýs hreppsnefnd oddvita og einn varaoddvita. Skal kjörtímabil þeirra vera hið sama og hreppsnefndar.

Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings hreppsnefndar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í hreppsnefnd. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita.

III. KAFLI

Fundir hreppsnefndar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir hreppsnefndar.

Hreppsnefnd Árneshrepps heldur fundi á skrifstofu sveitarfélagsins í annarri viku hvers mánaðar.

Aukafundi skal halda þegar oddviti telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur hreppsnefndarfulltrúa óskar þess.

Hreppsnefnd er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mót­atkvæðalaust á næsta fundi hreppsnefndar á undan.

Hreppsnefnd er heimilt að fella niður reglulega fundi hreppsnefndar vegna sumarleyfis.

9. gr.

Boðun hreppsnefndarfunda.

Oddviti, boðar fundi hreppsnefndar. Fundarboð skal berast hreppsnefndarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast hreppsnefndarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.

Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að hreppsnefndarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

10. gr.

Dagskrá hreppsnefndarfundar.

Oddviti semur dagskrá hreppsnefndarfundar og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá hreppsnefndarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar oddvita hreppsnefndar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsnefndar, svo og ráðningu helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endur­skoðenda þess.
  2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar hreppsnefndar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið hreppsnefndar og oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver hreppsnefndarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Hreppsnefndarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá hreppsnefndarfundar skal tilkynna það oddvita skriflega í tæka tíð til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi hreppsnefndar.

Í upphafi kjörtímabils hreppsnefndar tekur hreppsnefnd ákvörðun um hvar og hvenær hrepps­nefndar­fundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitar­félagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með auglýsingu á skrifstofu sveitarfélagsins, á heimasíðu þess, og í kaupfélaginu í Norðurfirði um fyrirhugaða fundi hreppsnefndar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um hreppsnefndarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir hreppsnefndar.

Fundir hreppsnefndar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Oddviti eða hreppsnefnd getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Hreppsnefnd getur enga ályktun gert nema meira en helmingur hreppsnefndarmanna sé viðstaddur á fundi.

Á hreppsnefndarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.

Tvær umræður í hreppsnefnd.

Hreppsnefnd skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal hreppsnefnd hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

15. gr.

Fundarsköp hreppsnefndar.

  1. Fundarstjórn. Oddviti stjórnar umræðum á fundum hreppsnefndar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Oddviti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum hreppsnefndar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar hreppsnefndar.
    Mynd- og hljóðupptökur eru háðar leyfi oddvita. Það sama gildir um ljósmyndatökur.
  2. Vald oddvita. Skylt er hreppsnefndarmanni að lúta valdi oddvita í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef hreppsnefndarmaður ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal oddviti víta hann. Ef hreppsnefndarmaður er víttur tvisvar á sama fundi getur oddviti lagt til við hreppsnefnd að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef hreppsnefndarmaður hlýðnast ekki úrskurði oddvita eða almenn óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á hreppsnefndarfundi raskar fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir í fundarsal hreppsnefndarstjórnar. Mynd- og hljóð­upptökur og myndatökur á fundum hreppsnefndar eru háðar leyfi oddvita.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema hreppsnefnd eða oddviti ákveði að önnur röð skuli höfð. Oddviti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra hreppsnefndarmanna þau afbrigði.
  4. Málfrelsi. Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum hrepps­nefndar.
    Hreppsnefndarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða oddvita eða framsögumann svo og hreppsnefndarmann sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður oddviti í hvaða röð þeir tala.
    Hreppsnefndarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.
  5. Ávarp ræðumanns. Hreppsnefndarmaður skal beina máli sínu til oddvita. Hrepps­nefndar­maður skal ávarpa einstaka hreppsnefndarmenn með fullu nafni.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða. Ekki má lesa prentað mál nema oddviti leyfi.
  6. Hve oft má tala. Hreppsnefndarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó hreppsnefndarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Oddviti, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Oddviti hefur óbundið málfrelsi.
  7. Ræðutími. Ef oddviti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrár­tillögu um að ræðutími hvers hreppsnefndarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver hrepps­nefndar­maður getur og borið fram slíkar tillögur. Hreppsnefnd afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver hreppsnefndarfulltrúi kveður sér hljóðs.
  8. Tillögur og afgreiðsla. Hreppsnefndarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðauka­tillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Oddviti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  9. Réttur til bókunar. Hreppsnefndarmenn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  10. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á hreppsnefndarfundi fer að jafnaði fram með handa­uppréttingu. Hreppsnefndarmaður greiðir atkvæði úr sæti sínu. Oddviti biður þá hrepps­nefndar­menn sem samþykkja mál að rétta upp hönd. Að því búnu leitar oddviti mót­atkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef hreppsnefndarmaður óskar og hreppsnefnd samþykkir.
  11. Kosningar. Kosningar sem fara fram í hreppsnefnd, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

16. gr.

Ritun og birting fundargerða.

Fundargerðir hreppsnefndar eru skráðar í tölvu. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundar­gerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundar­gerð hreppsnefndar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Um ritun fundargerða hreppsnefndar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum ráðuneytis sveitar­stjórnar­mála um ritun fundargerða, sbr. auglýsingu þess efnis nr. 22/2013, sem settar hafa verið skv. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

Fundargerðir hreppsnefndar skulu vera aðgengilegar íbúum Árneshrepps á heimasíðu sveitar­félags­ins að fundi loknum enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi hreppsnefndarmanna, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem við á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber hreppsnefndarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

18. gr.

Varamenn í hreppsnefnd.

Sé hreppsnefndarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna forföllin til oddvita sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í hreppsnefnd í þeirri röð sem þeir voru kosnir.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna.

19. gr.

Skyldur hreppsnefndarmanna.

Hreppsnefndarmanni er skylt að taka þátt í öllum hreppsnefndarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í hreppsnefnd er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan hreppsnefndar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum hreppsnefndarmanni er skylt að inna af hendi störf sem hreppsnefnd felur honum og varða verkefni hreppsnefndarinnar.

Hreppsnefndarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

20. gr.

Réttur hreppsnefndarmanna.

Hreppsnefndarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Hreppsnefndarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá hreppsnefndarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess. Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá hreppsnefndarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Hreppsnefndarmenn hafa málfrelsi á fundum hreppsnefndar eftir því sem nánar er ákveðið í fundar­sköpum hreppsnefndar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum hreppsnefndar.

Vilji hreppsnefndarmaður ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til hreppsnefndar sem sker úr án umræðna.

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í hreppsnefnd á sérhver hreppsnefndarmaður rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í hreppsnefnd.

Hreppsnefndarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Hreppsnefndarmaður skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem hreppsnefnd setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

23. gr.

Lausn frá störfum.

Telji hreppsnefndarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í hreppsnefnd án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við hreppsnefnd að hún létti af honum störfum eða veiti honum lausn úr hreppsnefnd um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar hreppsnefndarmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má hreppsnefnd ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr hreppsnefnd þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en hreppsnefndarmaður flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir hreppsnefndarmaður kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi hreppsnefndarmaður kjörgengi skal hann víkja úr hreppsnefnd. Ef hreppsnefndarmaður missir fjárforræði skal hreppsnefnd veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í hreppsnefnd skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur hreppsnefndarmaður krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra hreppsnefndarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í hreppsnefnd á þeim fundi.

Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður.

Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í hreppsnefnd mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í hreppsnefndinni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í hreppsnefnd skal varamaður hans taka sæti í hreppsnefnd frá og með næsta fundi.

25. gr.

Þóknun o.fl.

Hreppsnefndarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í hreppsnefnd. Ef um langan veg er að fara milli heimilis hreppsnefndarmanns og fundarstaðar hreppsnefndar skal sveitarstjórnarmaður fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist hreppsnefndarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun hreppsnefndarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Hreppsnefnd setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Hreppsnefndarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í hreppsnefnd.

V. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir.

27. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Hreppsnefnd kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir hreppsnefndar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og hreppsnefndar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin hreppsnefnd hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri hreppsnefnd sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

28. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir hreppsnefndar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal hrepps­nefnd gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Hreppsnefnd getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.

29. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir hreppsnefnd til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar.

Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar hreppsnefndar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal ætíð lögð fyrir hreppsnefnd.

30. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

31. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 15. gr. samþykktar þessarar.

32. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

33. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í hreppsnefnd, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við hreppsnefnd að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Hreppsnefnd getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefna­legar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Ennfremur getur hreppsnefndarmaður krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Hreppsnefnd er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitar­félagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

34. gr.

Þóknun.

Hreppsnefnd er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitar­félagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati hreppsnefndar, í samræmi við reglur sem hún setur.

35. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

36. gr.

Nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Hreppsnefnd kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem hreppsnefnd kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum hrepps­nefndarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

37. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

  1. Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum hreppsnefndarkosningum. Viðkomandi nefndir kjósa sér for­menn.
    1. Kjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
    2. Byggingarnefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
    3. Skólanefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
    4. Atvinnumálanefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
    5. Samgöngunefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
    6. Skipulagsnefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
    7. Náttúruverndarnefnd: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
  2. Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar stjórnir ásamt fulltrúum annarra sveitarfélaga:
    1. Félagsmálanefnd Stranda og Reykhólahrepps: Einn fulltrúi og einn til vara.
    2. Stjórn Sorpsamlags Strandasýslu: Einn fulltrúi og einn til vara.
  3. Þar sem ekki eru kosnar sérstakar nefndir fer hreppsnefnd með verkefni þeirra.

38. gr.

Verkefnabundnar nefndir.

Hreppsnefnd getur kosið nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils hreppsnefndarinnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Hreppsnefnd getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.

VI. KAFLI

Framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

39. gr.

Hlutverk oddvita.

Oddviti fer með daglega stjórn sveitarfélagsins, undirbýr fundi hreppsnefndar og annast fram­kvæmd ákvarðana hreppsnefndar og annarra málefna sveitarfélagsins, svo sem bréfaskipti, gjald­heimtu og reikningshald.

Laun oddvita skulu ákveðin sérstaklega af hreppsnefndinni. Skulu launin endurskoðuð reglulega í samræmi við almennar launabreytingar í landinu.

Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem oddviti sér um, á hann rétt á sérstakri þóknun fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun hrepps­nefndar.

Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundarhalda í þágu sveitar­félagsins á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu.

Oddviti er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitar­félagsins prókúru að fengnu samþykki hreppsnefndar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Oddviti undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.

40. gr.

Ráðning starfsmanna.

Hreppsnefnd ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og veitir þeim lausn frá starfi.

Oddviti ræður aðra starfsmenn sveitarfélagsins en þá sem greinir í 1. mgr. og veitir þeim lausn frá störfum. Forstöðumenn stofnana ráða þó starfsmenn viðkomandi stofnana.

41. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn sveitarfélagsins og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara sam­kvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

42. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Gera skal skriflegan ráðningarsamning við starfsmenn. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfs­manna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðn­ingar­samninga.

VII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

43. gr.

Fjárstjórnarvald hreppsnefndar.

Einvörðungu hreppsnefnd getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitar­félagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undan­tekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

44. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Hreppsnefnd skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Oddviti, hafi framkvæmdastjóri ekki verið ráðinn, leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitar­stjórnar­laga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir hreppsnefnd eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Hrepps­nefnd skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna milli­bili. Að lokinni umræðu hreppsnefndar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á hand­bæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjár­heimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitar­sjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Hreppsnefnd skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhags­áætlun.

45. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem hreppsnefnd tekur skv. 43. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema hreppsnefnd hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að hreppsnefnd hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar hreppsnefndar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi hreppsnefndarinnar.

46. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Hreppsnefnd ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

47. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Hreppsnefnd skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en hreppsnefnd tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Um heimildir sveitarfélagsins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

48. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálf­stætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af oddvita og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í hreppsnefnd fyrir 15. apríl ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

49. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Hreppsnefnd ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitar­stjórnar­laga.

VIII. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

50. gr.

Hreppsnefnd skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika á að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúning stefnumótunar, sbr. ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga.

Hreppsnefnd skal sérstaklega vinna að því að íbúar sveitarfélagsins geti fengið greinargóðar upplýsingar um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og önnur mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Í því skyni verði eftir því sem best hentar veittar upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins, dreifibréf send á heimili í sveitarfélaginu eða haldnir borgarafundir.

51. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 33,33% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal hreppsnefnd verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk hreppsnefndar og framkvæmd almennrar atkvæða­greiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

52. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem hreppsnefnd Árneshrepps hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. desember 2018.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. janúar 2019