Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 457/2020

Nr. 457/2020 15. maí 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 vegna Grásteins, íbúðarsvæði Í13.

Skipulagsstofnun staðfesti 15. maí 2020 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2020.
Í breytingunni felst að á íbúðarsvæðinu Grásteinn (Í13) er lóðum fjölgað úr 5 í 10 og íbúðum úr 5 í 16 þar sem gert verður ráð fyrir bæði parhúsum og einbýlishúsum á svæðinu, sem áfram er 5 ha.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 15. maí 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. maí 2020