1. gr.
Gjaldskrá þessi er unnin og sett í samræmi við ákvæði 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar. Hún er í samræmi við samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum nr. 761/2005.
2. gr.
Samkvæmt álagningu gjalda sem samþykkt var í bæjarráði þann 14. desember síðastliðinn nema gjöld fyrir sorpeyðingu og sorphreinsun eftirfarandi:
Sorphreinsun, á íbúð |
21.462 kr. á ári |
Sorpeyðingargjald, á íbúð |
48.481 kr. á ári |
Umrædd gjöld ná til um 50% af heildarkostnaði við sorphreinsun og sorpeyðingu. Samkvæmt nýsamþykktum lögum ber sveitarfélögum að innheimta heildarkostnað sorpeyðingar- og sorphreinsunargjalda með álagningu á einstaklinga og fyrirtæki miðað við það magn sorps sem losað er. Til stendur að innleiða kerfi sem mælir losun einstakra fyrirtækja og heimila á þessu ári. Þegar því er lokið mun mismunur á ofangreindu sorpeyðingar- og sorphirðugjaldi innheimtast miðað við það magn sorps sem losað er. Mismunurinn verður lagður á í sérstakri álagningu síðar á árinu.
Heiti |
Pr./m³ |
Skýring |
Óflokkaður blandaður rekstrarúrgangur |
34.425 kr. |
Óflokkaður úrgangur, t.d. lífrænn úrgangur blandaður rekstrarúrgangi |
Blandaður rekstrarúrgangur |
22.954 kr. |
Almennt sorp, spillt endurvinnsluefni |
Lífrænn úrgangur |
6.257 kr. |
Ómengaður lífrænn úrgangur (ekkert plast eða utanaðkomandi, sláturúrgangur er undanskilinn vegna beina) |
Ólitað timbur |
6.257 kr. |
Bretti, ómálað timbur |
Litað timbur |
10.429 kr. |
Gagnvarið, málað, spónlagt o.fl. |
Óvirkur úrgangur (urðun) |
6.257 kr. |
Gler, jarðvegur, steypubrot |
Veiðarfæri |
34.425 kr. |
|
Endurvinnsluefni |
0 kr. |
Pappi, plast, hjólbarðar, málmar, landbúnaðarplast,raftæki |
Garðaúrgangur |
0 kr. |
Gras, trjágreinar,lauf |
Annað |
|
Samkvæmt tilboði |
Spilliefni |
|
Samkvæmt gjaldskrá móttökustöðva (efnamóttakan) |
Sóttmengaður úrgangur |
|
Samkvæmt tilboði |
Allar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.
Heimilt er að innheimta kostnað vegna umframmeðhöndlunar á úrgangi frá úrgangshafa, gjöld vegna þessa skulu ekki vera hærri en sem nemur raunkostnaði vegna umframmeðhöndlunar.
Undanþegnar magngjaldtöku eru bifreiðar sem bera úrvinnslugjald.
3. gr.
Hægt er að nálgast flokkunarreglur á vef bæjarins www.vestmannaeyjar.is/sorp eða í síma 488 2530.
Allar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.
Gjaldskrá þessi, sem er samþykkt af bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar 23. febrúar 2023, öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 197/2021 um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjabæ.
Vestmannaeyjum, 30. janúar 2023.
Brynjar Ólafsson framkvæmdastjóri.
|