Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Þingás, landnr. 224358 og Efri-Gróf, lóð 5, landnr. 223471. Deiliskipulagið tekur til tveggja spildna úr landi Efri-Grófar, annars vegar Efri-Grófar 5, landnr. 223471, sem er 30 ha að stærð og hins vegar Þingáss, landnr. 224358, sem er 10,42 ha. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúsa, reiðskemmu og vélaskemmu auk gestahúsa. Skipulagssvæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði og verður landið áfram nýtt til landbúnaðar. Samþykkt í sveitarstjórn 6. febrúar 2019.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 24. apríl 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|