Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:
Leiðrétt skjal: B_nr_644_2019 leiðrétt.pdf
Leiðrétt 10. júlí 2019:
HTML texti réttur en rangt pdf skjal, leiðréttu pdf skjali bætt við.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 644/2019

Nr. 644/2019 8. júlí 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 2. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar bætast eftirfarandi liðir:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2018) 4857 frá 27. júlí 2018 um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2015) 8005 hvað varðar notkun búnaðar til greiningar sprengiefnis fyrir  skimun handfarangurs, vökva, úðaefna og gels;
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2019) 132 frá 23. janúar 2019 um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2015) 8005 að því er varðar nánari útlistun, samræmingu og einföldun, sem og um styrkingu tiltekinna flugverndarráðstafana.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka. 

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. júlí 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.  

Jónas Birgir Jónasson.


B deild - Útgáfud.: 9. júlí 2019