Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Borg í Grímsnesi. Óveruleg breyting er gerð á gildandi deiliskipulagi að Borg í Grímsnesi, fyrir lóðirnar Minni-Borg, L169681, Gömlu-Borg, L169144 og Minni-Borg, L168438. Í breytingunni felst breytt lega lóðanna auk þess sem skilgreind er lega nýrrar lóðar umhverfis bensíndælur innan lóðar Minni-Borgar. Samþykkt í sveitarstjórn 6. október 2021.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 12. október 2021.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|