Bjargsland II, svæði 1, Fjóluklettur 13 og 15. Breyting á deiliskipulagi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi í Borgarnesi á fundi sínum 11. ágúst 2022. Hún tekur til breyttrar legu byggingarreita á tveimur lóðum sem bætir mögulega nýtingu þeirra. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 8. september 2022.
Drífa Gústafsdóttir skipulagsfulltrúi.
|