Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti þann 14. maí 2019 breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis. Í breytingunni felst að gatnakerfið er stækkað, lóðastærðum breytt og lóðum fjölgað. Stígar umhverfis svæðið og gróðurbelti eru sýnd til leiðsagnar. Nýtingarhlutfalli lóða er breytt. Lega jarðstrengs er færð inn á uppdrátt. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi. Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 662/2019.
Akranesi, 31. júlí 2019.
Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri.
|