1. gr.
15. gr. reglnanna breytist og orðast svo ásamt fyrirsögn:
Hæf verðbréf til tryggingar fyrir heimildum.
Eftirfarandi verðbréf gefin út í íslenskum krónum og innlán eru hæf til tryggingar fyrir heimildum í stórgreiðslukerfi:
- Verðbréf gefin út af ríkissjóði Íslands.
- Íbúðabréf gefin út af Íbúðalánasjóði.
- Innstæðubréf gefin út af Seðlabanka Íslands.
- Bundin innlán þátttakenda í Seðlabanka Íslands.
- Sértryggð skuldabréf, sem uppfylla skilyrði 11. gr. reglna nr. 553/2009 um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands. Trygging með verðbréfum samkvæmt þessum lið getur samtals verið að hámarki 50% af heildartryggingu sérhvers þátttakanda í stórgreiðslukerfinu.
2. gr.
16. gr. reglnanna breytist og orðast svo ásamt fyrirsögn:
Skilyrði fyrir tryggingarhæfi verðbréfa.
Verðbréf sett til tryggingar skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Útgefið markaðsvirði flokks í íslenskum krónum sé yfir 3 ma.kr. og staðfest að það magn hafi selst, að undanskildum sértryggðum skuldabréfum, sbr. 5. tölulið 15. gr.
- Verðbréfin hafi viðskiptavaka á skipulegum verðbréfamarkaði eða viðurkenndum upplýsingaveitum sem Seðlabankinn samþykkir.
- Verðbréfin skulu vera rafrænt skráð í verðbréfamiðstöð sem Seðlabankinn viðurkennir.
3. gr.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 38. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 2. júlí 2019.
Seðlabanki Íslands,
|
Már Guðmundsson |
Guðmundur Kr. Tómasson |
|
seðlabankastjóri. |
framkvæmdastjóri. |
|