Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 861/2021

Nr. 861/2021 6. júlí 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ásahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur hreppsnefnd Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Hellatún, Laufásvegur.
Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi Hellatúns, sem tekur til lóða og jarða við Laufásveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarheimildum er varðar gestahús innan svæðisins. Núver­andi heimildir gera ráð fyrir allt að 30 fermetra gestahúsi með 5 metra mænishæð. Eftir breytingu verður heimilt að byggja allt að 50 fermetra gestahús. Aðrir skilmálar deiliskipulags­ins haldast óbreyttir.
Samþykkt í sveitarstjórn 19. maí 2021.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 6. júlí 2021.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2021