Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 136/2021

Nr. 136/2021 30. desember 2021

LÖG
um breytingu á ýmsum lögum til að framlengja gildistíma bráðabirgðaákvæða um rafræna meðferð mála o.fl.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

I. KAFLI

Breyting á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991.

1. gr.

    Í stað ártalsins „2021“ á tveimur stöðum í 158. gr. laganna kemur: 2023.

 

II. KAFLI

Breyting á erfðalögum, nr. 8/1962.

2. gr.

    Í stað ártalsins „2021“ í ákvæði til bráðabirgða í lögunum kemur: 2023.

 

III. KAFLI

Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991.

3. gr.

    Í stað ártalsins „2021“ á tveimur stöðum í 208. gr. laganna kemur: 2023.

 

IV. KAFLI

Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

4. gr.

    Í stað ártalsins „2021“ á þremur stöðum í ákvæði til bráðabirgða X í lögunum kemur: 2023.

 

V. KAFLI

Breyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016.

5. gr.

    Í stað ártalsins „2022“ í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2027.

 

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 30. desember 2021.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Jón Gunnarsson.


A deild - Útgáfud.: 30. desember 2021