Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 714/2019

Nr. 714/2019 24. júlí 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ásahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur hreppsnefnd Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deili­skipulags­áætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Kálfholt 2, K2, landnr. 165296.
Breytingin felur í sér að í stað 5 smáhýsa á reit F1 verður heimilt að byggja allt að 120 m² hús ætlað til ferðaþjónustu. Svæðið er í samræmi við aðalskipulag Ásahrepps 2010-2022 og er skil­greint sem verslunar- og þjónustusvæði.
Samþykkt af hreppsnefnd Ásahrepps þann 20. febrúar 2019.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 24. júlí 2019.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 8. ágúst 2019