Deiliskipulagsbreyting fyrir Mánastaði í Ölfusi. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss þann 29. október 2020, deiliskipulagsbreytingu fyrir Mánastaði í Ölfusi. Breytingin gerir ráð fyrir 4 nýjum lóðum á skipulagssvæðinu með byggingarreitum fyrir íbúðarhús og gestahús eða bílskúr auk lóðar fyrir sorp og flokkun þess. Deiliskipulag þetta hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Nýtt deiliskipulag Dimmustaða í Ölfusi. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss þann 29. október 2020, deiliskipulagsbreytingu fyrir Dimmustaði í Ölfusi. Skipulagið gerir ráð fyrir að skipta skipulagssvæðinu í fjórar lóðir með byggingarreitum fyrir íbúðarhús og gestahús eða bílskúr. Deiliskipulag þetta hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Þorlákshöfn, 19. nóvember 2020.
Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.
|