Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Hraungerði, L166237, stækkun lóðar. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóð umhverfis íbúðarhús stækkar úr 2.509 m² í 8.202 m². Skipulagsskilmálar eru óbreyttir að öðru leyti. Samþykkt í sveitarstjórn 21. júní 2022.
Deiliskipulagsbreyting, Yrpuholt, L166352. Óveruleg breyting á deiliskipulagi sem tekur til breyttrar legu aðkomuvegar auk þess sem heimild er veitt fyrir skilgreiningu lóðar umhverfis íbúðarhús. Samþykkt í sveitarstjórn 4. október 2022.
Deiliskipulag, Krókur, L166363. Deiliskipulagið tekur til 3,9 ha landspildu úr landi Króks innan skilgreinds landbúnaðarlands. Gert er ráð fyrir að skipta spildunni í níu lóðir. Skipting landsins byggir á þinglýstri skiptingu þess á milli skráðra eigenda jarðarinnar. Af þessum níu lóðum eru byggingar á fjórum og gert ráð fyrir byggingum á tveim til viðbótar. Skipulagið gerir ráð fyrir íbúðarhúsi og aukahúsi á hverjum byggingarreit að byggingarreit 8 undanskildum en þar er skemma og er nýtingarhlutfall þess reits fullnýtt nú þegar. Samþykkt í sveitarstjórn dags. 4. október 2022.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 9. nóvember 2022.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|