Miðnes í Borgarnesi, nýtt deiliskipulag. Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Miðnes í Borgarnesi. Meginmarkmið skipulagstillögu eru að staðfesta lóðamörk, afmarka byggingarreiti og setja skilmála um mannvirki á lóðum og hugsanlega frekari uppbyggingu. Málsmeðferð var skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Borgarnesi, 19. júní 2019.
Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri.
|