Hinn 15. apríl 2014 var kanadíska utanríkisráðuneytinu afhent samþykktarskjal Íslands vegna breytinga, sem samþykktar voru af Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnuninni í Lissabon hinn 28. september 2007, á samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi frá 24. október 1978, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 17/1978, þar sem samningurinn er birtur. Breytingarnar tóku gildi hvað Ísland varðar hinn 18. maí 2017.
Breytingin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 7. október 2021.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|