Víkurheiði, óveruleg breyting á deiliskipulagi. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti á fundi sínum 20. október 2021 óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Víkurheiði, Selfossi. Meginmarkmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að auka nýtingu á svæðinu og afmarka lóðir fyrir spennistöðvar. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Selfossi, 9. nóvember 2021.
F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar,
Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi.
|