Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1066/2022

Nr. 1066/2022 6. september 2022

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi fyrir Hlíðarhverfi suðurhluta.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti 24. ágúst 2022 breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlíðar­hverfi – suðurhluta.
Breytingin tekur til lóðarinnar Lönguhlíðar 28 og felur í sér stækkun á byggingarreit, breytingu á húsagerð úr einbýlishúsi í tvíbýlishús og aukningu á nýtingarhlutfalli úr 0,3 í 0,347. Þá er inn­keyrslu bætt við frá Höfðahlíð og settir skilmálar um vegghæð efri hæðar og staðsetningu bíl­geymslu.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 6. september 2022,

 

María Markúsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 20. september 2022