Selás í landi Ánabrekku, breyting á deiliskipulagi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti breytingu á deiliskipulagi sumarbústaðalanda í Selási í landi Ánabrekku frá árinu 1989 með síðari breytingum, á fundi sínum þann 12. maí 2022. Deiliskipulagssvæði er stækkað um 1,07 ha, aðkomuvegi að lóðum skipt í tvær leiðir og lóðum fækkað um eina. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 8. júní 2022.
Drífa Gústafsdóttir skipulagsfulltrúi.
|