Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingar sem hér segir:
Krókatjörn, L125143, Mosfellsbæ – nýtt deiliskipulag – 518-F. Deiliskipulagið nær yfir 1,6 ha frístundahúsalóð í Miðdalslandi í Mosfellsbæ, sem skipta á upp í tvær frístundahúsalóðir. Svæðið er staðsett við Krókatjörn norðan við Nesjavallaveg (435).
Íþróttasvæði við Varmá, Mosfellsbæ – deiliskipulagsbreyting – 111-S. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér breytingar á byggingarheimildum í greinargerð skipulagsins. Heimildir aukast innan byggingareita b6 og b8. Nýbyggingar hafa verið innfærðar. Annað í skipulagi er óbreytt.
Frístundabyggð - Selmörk við Selvatn, L192510, Mosfellsbæ – deiliskipulagsbreyting – 531-F. Breytingin felur í sér breytt lóðamörk innan svæðis deiliskipulagsins. Spildu A er skipt upp í tvær lóðir sem hvor um sig verður rúmur ha að stærð og ný lóð fær auðkennið E. Annað í skipulagi er óbreytt.
Ofangreindar skipulagsbreytingar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 4. ágúst 2022,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|