Á grundvelli 3. mgr. 4. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið staðfest samkomulag Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps um breytingu á mörkum sveitarfélaganna, samanber samþykkt bæjarráðs Sveitarfélagsins Árbogar frá 24. janúar 2019 og samþykkt sveitarstjórnar Flóahrepps frá 6. febrúar 2019.
Um er að ræða 1.971 fermetra landsvæði í Flóahreppi, landnr. 229186, sem liggur að sveitarfélagamörkum við Sveitarfélagið Árborg austan við Selfoss og verður eftir breytinguna innan marka Sveitarfélagsins Árborgar.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. janúar 2020.
F. h. r.
Hermann Sæmundsson.
|