1. gr.
5. gr. reglnanna breytist og orðast svo:
5. gr.
Grunnfjárhæð.
Við útreikning sérstaks húsnæðisstuðnings skal miða við neðangreind tekjumörk miðað við fjölda heimilismanna. Miðað skal við sömu tekjur og liggja til grundvallar ákvörðun húsnæðisbóta hverju sinni.
Með tekjum er átt við allar tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt nr. 90/2003, sbr. og 3. mgr. 17. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur.
Tekjur undir neðri tekjumörkum skerða ekki rétt til sérstaks húsnæðisstuðnings. Sérstakur húsnæðisstuðningur fellur niður við efri tekjumörk í hverju tilfelli en skerðist hlutfallslega upp að því marki.
Fjöldi heimilis-manna |
Neðri tekjumörk á ári |
Efri tekjumörk á ári |
Neðri tekjumörk á mánuði |
Efri tekjumörk á mánuði |
1 |
3.885.000 |
4.856.250 |
323.750 |
404.688 |
2 |
5.138.226 |
6.422.783 |
428.186 |
535.232 |
3 |
6.015.484 |
7.519.355 |
501.290 |
626.613 |
4 eða fleiri |
6.516.774 |
8.145.968 |
543.065 |
678.831 |
2. gr.
Breytingar þessar, sem samþykktar voru á fundi velferðarráðs 6. febrúar 2019, og á fundi borgarráðs 21. febrúar 2019, eru byggðar á 2. og 3. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, eru ívilnandi og tóku gildi 1. janúar 2019.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 25. febrúar 2019.
Dagur B. Eggertsson.
|