Breyting á greinagerð deiliskipulags Sléttuhlíðar vegna þakhalla og veggjahæða. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 20. apríl 2022 breytingu á greinagerð deiliskipulags Sléttuhlíðar þar sem þakhalli er gefinn frjáls og vegghæð langhliða má ekki fara yfir 3,4 m yfir gólfkóta. Ef þakform er einhalla má vegghæð/hæðsti hluti þaks aldrei verða meiri en 4,4 m. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
Hafnarfirði, 18. júlí 2022.
Berglind Guðmundsdóttir skipulagsfulltúi.
|