Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 484/2023

Nr. 484/2023 5. maí 2023

AUGLÝSING
um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogsbæjar á tillögu að breyttu deiliskipulagi.

Hafnarbraut 10. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs 28. mars 2023 breytt deiliskipulag fyrir lóðina nr. 10 við Hafnarbraut. Í breytingunni felst að íbúðum fjölgar úr 40 í 48 ásamt því að niðurgrafin bílageymsla stækkar úr 1.200 m² í 2.090 m². Bílastæðum fjölgar úr 52 í 54.
Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.

 

Kópavogi, 5. maí 2023.

 

Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 22. maí 2023